|
20.11.2006 22:41:24 / frida
Stúlkukind hefur ekki verið að gera neitt merkilegt nema að hún er
búin að setja ullarpeysuna saman og er að reyna smella munstrinu á
hana, fór til Ragnheiðar í Efsta Dal
og sat þar við að setja peysuna saman á meðan hún og tengdamamma
hún Rúna voru að gera slátur voða stuð hjá okkur. Eins og allir
vita þá er veðrið búið að vera hræðilega kalt og mikið rok í
síðustu viku. Ég er farin að reyna tjá mig á þýsku í vinnunni þar
sem þrír starfsmenn tala þýsku. Það er búið að bjóða mér á
jólahlaðborð á Hótel Geysi og þar verða Stebbi Hilmars
og Eyjólfur kristjáns, mjög gaman fer örugglega.
Það sem er á næstunni : að gera harðangur og klaustur í
sængurverasett handa ungabarni og ullarpeysa handa mér...... svo
eiga einhverjir eftir að fá vettlinga
Er búin að horfa á alla friends seríuna
dabb
»
06.11.2006 23:21:43 / frida
Stúlkukindin fór í bæinn nýrúin vegna þess að henni vantaði garn í
peysuna handa stóru systir (skrítið). Stúlkukindin fór að heimsækja
siðmenntaðar kindur sem voru með henni í Hússtjórnarskólanum, fórum
út að borða á horninu , svo fóru allir á einhvern bar og þar var
drukkið og spjallað, held að Íris ætli að halda partý 17 nóvember.
Stúlkukindin og Hrefna sæta ætlum að skipuleggja bústaðaferð eftir
áramót. Á sunnudeginum spurði ég pabba hvort hann þyrfti nudd á
hnjásvæðið og þegar hann var að hugsa sig um fékk hann þvílíkan
verk í hnéð og sagði að ég væri norn _djók, jæja held að ég hafi
læknð hann svo hann kæmist á æfingu. Fór til Sigurðar
Þúfubónda og Snorri og Týra komu líka.
jæja þangað til að ég hef eitthvað merkilegt að segja
bið að heilsa ykkur
»
30.10.2006 23:11:38 / frida
Stúlkukindin er svaka flippuð kind, í vor lét hún taka myndir af
sér þar sem hún stendur on á hestinum sínum honum blesa, stundum
þegar ég gerði þetta inn í stíunni hans þá labbaði ég fram og til
baka og gerði allar hundakunstir og hann stóð alltaf kyrr.
Maður systir minnar tók mynd af þessu athæfi mínu og er hún komin
til sýningu
Fór til Hveragerðis í dag til að ná í skattkortið mitt og leit inn
hjá Sigga á þúfu í einn kaffibolla og þaut út þegar það var orðið
of margt af körlum - three is more than a crowed
jæja verið sæl að sinni
»
28.10.2006 17:57:55 / frida
Stúlkukindin er að vinna alla daga og kemur svo heim til að passa
lítið lamb, þess á milli er hún á fullu að reyna prjóna alfa/mohair
peysu handa Stóru kindasystur. Stúlkukind prjónaði húfu á sig en
það varð úr að hún gaf litlu kindasystir sinni hana því hún var of
lítil, kindin verður að prufa sig áfram það er alveg á tæru.
Stúlkukind er að passa allar helgar og hún hefur farið að heimsækja
Sigurð bónda á þúfu hverja helgi eftir að hún flutti en það verður
víst eitthvað að minnka á meðan það er fjárhalli haha......
Stúlkukindin þekkir engan hérna þannig að hún fer ekki mikið en til
nágrannans á hlaðinu hennar Stínu og svo býr Ragnheiður vinkona mín
rétt hjá, þannig að ég fæ fullt af hjálp að prjóna
verið sæl að sinni
endinlega segið ykkur skoðun um hvernig ég skrifa og hvað ég skrifa
ekki
»
05.10.2006 22:21:38 / frida
Stúlkukindin hefur hafið nýtt líf á nýjum slóðum þannig séð, hún er
núna búsett á Efri-Reykjum í biskupstungum þar sem hún fékk vinnu á
Friðheimum að tína tónmata og allt sem viðkemur umhirðu plantnanna.
Hún fékk líka það verkefni að vera yfirsetukind yfir litlu frænku
sinni sem er nýorðin eins árs svo Stóra kindasystir geti unnið og
átt einhvern frítíma. Núna á Stúlkukind nóg af ull svo að hún er að
fara prjóna húfu og skvísupeysu á stóru systir, það áttu allir að
fá vettlinga í jólagjöf sem ég myndi prjóna en það verður held ég
ekkert úr því, mér finnst svo erfitt að byrja. Stúlkukindin er ekki
búin að vera bralla mikið en hún fór að heimsækja loríu og berg og
það var mjög gaman.Kíkti á uppáhaldsvini mína á Shell litla og
stóra Villa svo fór ég að heimsækja Herra Sigurð þúfubónda og
hægri höndina hans Snorra, horfðum á Engla Alheimsins og ég held að
mér hafi aldrei fundist hún eins skemmtileg og eins og þegar ég
horfði á það með þeim. Stúlkukind fær alltaf sms á hverjum
fimmtudegi og þá er alltaf einhver uppákoma á hverfisbarnum en ég
bara kemst ekki Bæjarferðir verða sjaldséðnar þangað til að
Hestarnar fara á hús.
Kveð með þökkum um gott lesáhorf
mememeem
»
25.09.2006 21:14:14 / frida
Stúlkukindin er komin á kaldan klakan eftir að hafa verið í hitanum
á spáni í 12 daga
Þar var mjög heitt og kindin þurfti að nota viftu til að geta
sofið. Stúlkukindin gerði í því að liggja í sólinni og fá á sig lit
þó að hún sé ekki mesti aðdánandin hennar og gekk ágætlega.
Stúlkukindin kíkti á ströndina og lék sér í öldunum á vindsæng svo
að hún myndi ekki lenda í hremmingum frá killer marglittum sem voru
í því að láta sig koma upp að landi. Stúlkukindin fór í Terra
Metika Skemmtigarðinn og fór í þrjú tæki af ég veit ekki hvað
mörgum, henni fannst það bara mjög lélegt, en svona er að vera með
viðkvæman líkama. Það var mikið gert af sér eins og að brjóta
nokkra ára vínbindindi, allt sem hét drykkur var vont nema bjór og
var ég orðin dagdrykkjukind og var öllum svo bylt við að þau báðu
mig endilega að láta renna af mér áður en við kæmum til Íslands,
ætli maður fari ekki bara í annað bindindi
Gott frí bara með góðum ferðafélögum og vil ég senda þeim innilegar
þakkir fyrir allt saman.
yfir og út
»
07.09.2006 22:36:30 / frida
Það er langt síðan að það hefur heyrst einhver hljóð frá mér í
langan tíma ég sé að það sé alveg frá því um páskana og ég var í
Hússtjórnarskólanum í Reykjavík, já kláraði þar mað ljáði ekkert
sérstaklega ánægð með bóklegu fögin en jæja maður kann ýmislegt
eftir þetta. Ég sótti um vinnu í Hveragerði í sumar á gróðurstöð
sem var með sumarblóm og trjáplöntur. Ég fékk leigt herbergi á
besta stað í Hveragerði hjá Loryane og bergi og fékk alveg frábæran
mat, það þarf ekki að spyrja að því að hún Lory er listakokkur. Ég
vann mest með tveimur konum sem heita Jóhanna og Unnur, við urðum
bestu vinkonur og fórum alltaf í bakaríið á föstudögum svona til að
hafa einhverja tilbreytingu og einn daginn hitti ég góðan vin minn
hann Sigurð nokkurn á þúfu og bauð hann mér að koma að kíkja á sig
og það gerði ég og sat þar á kvöldin ásamt vini hans honum Snorra.
Nú er svo í pottinn búið að stúlkukindin er að flýja til spánar að
ná í síðustu sólina fyrir veturinn.
Takk fyriri þið sem hafið gert sumarið mitt ógleymanlegt
»
11.04.2006 23:24:59 / frida
Stúlkukind er komin í langt páskafrí og ákvað að skreppa í
sveitina, upplifa svona aðra stemningu og hitta hinar kindurnar
Stúlkukind er mjög glöð yfir því að dvelja hjá elstu kindarsystir
sinni og fá að passa litla lambið hennar, þess á meðan sem ég er að
hekla sjal (svona skólaverkefni). Blesi hesturinn minn er að koma í
bæinn eftir helgi og mig hlakkar svo til að dekra rúsínuna mína,
það er bara ekki hægt að fá betri hest það er allavega mjög auðvelt
að kenna honum. já ég fer aftur austur á laugardag eða sunnudag í
baráttuna
hef ekki meira að segja þannig séð ég er komin með ritstíflu
»
01.04.2006 21:37:51 / frida
Stúlkukindin fékk þá brjáluðu hugmynd að leigja spólu með litlu
systir og var svampur sveinsson fyrir valinu, þvílík og önnur eins
skemmtun fyrir mig og systir mina sem dýrkum teiknimyndir fyrir
utan að hún leyfir mér aldrei að vera með kjánagang, hún vill bara
hlusta og einbeita sér að efninu, enda finnst mér hún vera mjög
þroskuð miðað við aldur (sko bara min skoðun)
Ég er hneggjuð hneta já, þú ert hneggjuð hneta já, hneggi hneggi
hneggi hnetja já
á morgun förum við á fjölskyldumyndina lassie með frænkum okkur
Herdísi og Hrund og skellum okkur svo á hestbak á Kaffibarinn, áður
en ég held að ég fái flensuna er orðin kvefuð með hálsbólgu
jæja mæli allavega sterklega með þessari mynd Svampi Sveins
yfir og út
»
30.03.2006 20:14:42 / frida
Stúlkukindin er í fullu fjöri, hún gerði sér ferð til Hveragerðis
til að hlusta á hljómsveitina Hitakút sem er víst geisivinsæl þar í
bæ, ég varð allavega ekki fyrir vonbrigðum þótt ég stoppaði ekki
lengi því miður á vonandi eftir að fara aftur og sjá allt showið.
Stúlkukind er byrjuð að hekla sér sjal og það gengur ágætlega. Hún
er búin að vera bakari í eldhúsinu þessa vikuna, bakaði þvílíikt
góða snúðaköku og pizzusnúða sem vöktu lukku en vegna magnleysis þá
mátti enginn fá nema eitt stykki. Þetta er mjög hagnýtur skóli og
hef lært það að maður getur prjónað nánast allt, hefði verið til í
aðeins lengri námstíma þó því þetta er bara þvílík hraðbraut og
maður gerir víst ekki mikið en að hanga allan daginn í blessuðum
skólanum að gera heimavinnuna sína. Það er búið að vera mjög kalt
úti og stúlkukind er komin með hálsbólgu. jæja vildi að ég hefði
eitthvað að segja en betra er að þegja en að skrifa rugl
verið sæl
»
09.03.2006 20:33:51 / frida
Stúlkukind vill bara koma því á framfæri að hún viti ekki um annað
leiðinlegra en fólk sem nærist á slúðri, það að hnýsast í annara
manna líf og koma einhverjum sögum á stað sem eru ekki einu sinni
sannar. Hvernig getur maður kallað fólk sem er áberandi í
þjóðlífinu "frægt" er þetta ekki bara manneskja eins og ég og
þú.Hvað fáum við út úr því að lesa slúður um það eða heyra
einhverjar sögur um eitthvað sem þau hafa gert. Eins með
Kóngafólkið í útlöndum, ég veit ekki hvenær það gerist en á
einhverjum tímapunkti útnefni einhver valdamikill maður sig konung,
mér finnst þetta bara vera venjulegt fólk kannski að klæðaburðurinn
og þessi fínheit skera þau úr-bygging á þessum höllum er bara sóun
á skattpeningi, við erum ekkert betri sett rík eða fátæk heldur að
allir fái sinn skerf og það ríki jafnvægi á milli stétta  . Ætli
ég sjálf er bara fegin því að vera ekki í sjálfu spotlightinu ég
væri örugglega orðin geðveik á því að fólk væri að fylgjast með mér
og myndir af mér myndi byrtast í einhverju blaði en þá er stóra
spurningin hvernig kemur maður sér áfram í þessu þjóðfélagi.
me me me me Kindin kveður
»
05.03.2006 19:01:04 / frida
Ungar stúlkur frá því að vera ungmenni og þangað til þær kalla
sjálfa sig fullorðnar eru þær gjarnan kallaðar stúlkukindur, þess
vegna kalla ég mig stúlkukind, ekki það að mér finnst rollur bara
fín dýr og ef ég væri bóndi myndi ég örugglega vera með kindur.
Veðrið er búið að vera dásamlegt eins og það sé bara komið vor.
Stúlkukindin sá góða teiknimynd um helgina þar sem menn og dýr voru
að berjast, mennirnir voru að reyna höggva niður tré og fá landið
undir sig og framleitt járn en dýrin voru að reyna halda skóginum
og það var einn milligöngumaður sem var að reyna að fá þau til að
lifa í sátt og samlyndi en maðurinn er voðalega gráðug skepna,
afhverju er ekki hægt að finna milliveginn. Ég fæ nánast verk í
hjartað þar sem ég sé byggingar rísa þar sem maður vill ekki sjá
svoleiðis og missa útsýni og staði til að geta stundað útreiðar, og
plássið sem við fáum er alltaf að minnka og minnka.
jæja ég hef svo sem ekkert merkilegt að segja bara reyna halda mér
hérna inni og reyna finna nýjar hugsjónir og kannski fá einhvern
til að hugsa og finna leiðir til
betra lífs
over and out
»
03.03.2006 13:10:16 / frida
Stúlkukindin kemur brokkandi inn í skemmtanalífið í Reykjavík og
það er margt gaman að gerast til dæmis er hún í félagsskap sem fer
alltaf ríðandi á Hrímfaxa sem er svona Félagsmiðstöð fyrir fólk sem
er í hestunum á Reykjavíkursvæðinu og um daginn sá ég Hilmi Snæ og
Jóhann leikara sem var bara með session á gítarnum svaka stuð .
Um daginn fór ég á Hverfisbarinn að hlusta á Gunna Óla og Sigurjón
Brink og þar var allt troðfullt , mikið stuð á fimmtudögum því þá
er bara session út um allt.
Stúlkukindin reynir líka að sitja heima og gera heimaverkefnin sín
og hún er að hanna snilldarpeysu = hún er dökkblá með tveimur vösum
og útvíðum ermum svo er spurning hvort maður setji hettu eða
eitthvað annað, það hlakkar í mér að fylgja ekki uppskrift og do it
my way eins og einhver sagði það. Svo er stúlkukindin með smá
tilkynningu, hún fór í Hitt Húsið til að hlusta á upprennandi
tónlistarfólk og til ykkar sem viljið þá er verið að leita að fólki
í gigg.
jæja ætla hafa þetta dáldið dularfullt og skrifa ekki meira
sjáumst
»
19.02.2006 00:15:13 / frida
Stúlkukindin er komin á stjá, eftir nokkra erfiða daga í lopanum
en lífið er ekkert annað en smásigrar svona litlar bingókúlur.
Stúlkukindin tekur tilhlaup og hoppar yfir 4 hindranir bara til að
liðka stirða liði. Stúlkukindin er nú orðin 24 ára (11. feb) Hún
hélt upp á fæðinguna sína með því að fara með nokkrum vinum á
barinn Hrímfaxa og svo var haldið austur á Laugarvatn að hitta
gömlu góðu vinina sem eru nottla gull. Það er bara eitthvað sveitó
í stúlkunni eða eigum við að segja kindinni, þær eru báðar
jafnsætar. Stúlkukindin er dáldið mikil grallari og hefur verið
mikið að pæla í heimspeki, kindin er að hugsa hvort lífinu hennar
sé stjórnað gott dæmi eins og hún væri strengjabrúða og það væri
leikhússtjóri að stjórna henni að allt sem hún gerði væri fyrirfram
ákveðið, án þess að maður viti að það sem maður ákvað kom frá okkur
sjálfum eða leikhússtjóranum. Það er eins með hugsanirnar, hvaðan
koma þær og eru þær mínar eða er einhver sem segir mér þær, ég
vantreysti svo heilanum sem ég er með svo er ég áttavilt með það er
þetta nægar útskýringar ? Er einhver sem stentur fyrir aftan mig og
stjórnar mér eða er ég að vantreysta háþróaðri tegurnd að nafni
stúlkukind - you tell me/ skiluru
jæja út með púkan og inn með fjörið
stúlkukindin has left the building
»
10.02.2006 23:38:03 / frida
Stúlkukindin er að reyna meika það í skólanum, fattarinn er dáldið
langur þegar kemur að útsaumssporum í verkefnum. Kindur eru að gera
það gott eins og er þar sem lopi er mjög vinsæll at the moment í
lopapeysur og ekki má gleyma lopasokkum alveg nauðsynleg kvikindi
þar sem það er stundum kalt á tímabilum þegar maður er að stunda
útreiðar. Stúlkukind eins og ég er í skýjunum yfir að ná vel til
stelpnanna sem eru með mér í hóp og þeim finnst ég vera mjög fyndin
þó ég sjái það ekki sjálf - hallelúja.
Ég held að geimgeir sé alveg komin út fyrir kortið og ég sé í
millibilsástandi þar sem ég sé engar framfarir í andlegri líðan
minni eins og er, er að bíða eftir framhaldi. Stúlkukindin er
sammaála sjálfri sér með því að henni vantar eitthvað til að láta
andlitið á sér skína þannig að hún hafi eitthvað heillandi fram að
bera og eftir að hafa kynnst þessum kindum í skólanum þá er hún
alveg ráðvilt hvar maður kynnist svona ekta hrútum þeirra svar er á
djamminu en ég hefði helst viljað finna minn í hversdagslífinu þar
sem ég myndi hitta hann nokkrum sinnum í viku vegna ákveðna erinda
og uppúrþví myndi skapast einhver ástríða og svo er stóra
spurningin hvað er hið fullkomna deit allavega ekki að fara á
bíomynd
sæl að sinni skvísur og gaurar - gott líf framundan
»
Síður: 1 2 3
|